Hamingjuhjólið
EAN13
9788728421444
Éditeur
SAGA Egmont
Date de publication
Collection
Netta Muskett
Langue
islandais
Fiches UNIMARC
S'identifier

Hamingjuhjólið

SAGA Egmont

Netta Muskett

Livre numérique

  • Aide EAN13 : 9788728421444
    • Fichier MP3, libre d'utilisation
    8.99
„Eðli hennar er marþætt. Hún var náttúrubarn, sem hafði orðið dáðlausri
siðmenningu að bráð. Skyndilega blossaði upp í honum áköf löngun til þess að
fleygja henni aftur í faðm náttúrunnar,”

Hin fríða Cloe Denman er eftirsótt ung kona sem finnur hjá sér enga þörf til
að bindast nokkrum böndum þó hún eigi fjölmarga vonbiðla og enn fleiri
aðdáendur. Hún er vel ættuð, rík og lifir lífinu á eigin forsendum. Einn
daginn kemst hún í kynni við Mark Furlow og þá fara hjól hjartans að snúast
sem aldrei fyrr. En mun Cloe breytast við að mæta jafningja sínum? Hefur hún
fundið ástina? Eða mun hún bragða á eigin meðali?

Netta Muskett (1887–1963) fæddist í Sevenoaks, Kent, Englandi, hún hóf
starfsferil sinn sem stærðfræðikennari og sinnti sjúkraflutningum í fyrri
heimsstyrjöldinni. Síðar, árið 1927, gaf hún út sitt fyrsta skáldverk og varð
brátt þekktur höfundur rómantískra skáldsagnabóka. Hún byrjaði að skrifa um
fertugt og gaf hún út yfir 100 verk á ritferli sínum. Sum verka hennar komu út
undir dulnefninu Annie Hill.

Bækur Musketts eru þekktar fyrir grípandi söguþráð, margslungnar persónur og
rómantíska atburðarás. Muskett var talin einn af farsælustu höfundum
rómantískra skáldsagna á meðan hún lifði. Lesendahópur hennar var stór og voru
bækur hennar þýddar yfir á fjölmörg tungumál og nutu þær vinsælda um allan
heim.

Netta Muskett lést 76 ára gömul árið 1963 og entist henni ekki ævin til að sjá
öll hennar verk á prenti. Síðasta bókin hennar kom út árið 1964. Bandaríska
félagið The Romantic Novelists' Association veitti lengi verðlaun sem nefnd
voru í höfuðið á Nettu Muskett, en hún var einn af meðstofnendum félagsins.

Bækur hennar höfða til þeirra sem njóta rómantískra skáldsagna sem fjalla um
fjölskyldur, ástir og örlög.
S'identifier pour envoyer des commentaires.